Fjalldrapa

Maine coon

 

04.09.2008. Þá e rloksins búið að uppfæra síðuna okkar enda tími kominn á það þar sem hér fæddust 4 yndislegir kettlingar þann 19 ágúst. Bellu gekk þetta rosalega vel. Stoltur Pabbi er hinn nýinnflutti Artic Coons Inferno þó að hann sé enn nokkuð ungur þá fórst honum þetta vel úr hendi en hann var einungis 8 mánaða þegar að þau pöruðust. Var að setja inn nýjar myndir af afkvæmunum.

05.05.2008. Nýjar myndir af báðum gotum sem fara bara sí stækkandi :) Þau eru komin á mjög skemmtilegan aldur, eldra gotið er farið að sprella hérna út um alla íbúð, búin að uppgvöta að heimurinn er nokkuð stærri en bara afgirta svæðið sem þau hafa verið á og yngra gotið farið að leika sér á fullu, eru í því að veiða leikfanga mýs og bolta á milli þess sem þau sofa og borða.

 

24.04.2008. Í dag fórum við norður að ná í nýjasta Íslendinginn okkar í Einangrunina í Hrísey. Hann heitir N*Artic Coon's Inferno og er rauður tabby högni. Við erum svakalega ánægð með hvernig hann kom ut úr einangruninni, það er greinilegt að hann hefur fengið næga athygli, knús og klapp og greinilega vel haldinn bæði líkamlega og andlega og kunnum við einangruninni í Hrísey þakkir fyrir strákinn okkar.

Hann verður án efa flott viðbót við Maine Coon stofninn á Íslandi.

21.04.2008. komnar nýjar myndir af báðum gotum. Eldra gotið er farið að hlaupa og leika sér, borða vel og fara í kassann sinn að gera það sem þarf að gera þar :)

 

08.04.2008. komnar eru nýjar myndir af báðum gotunum og við loksins búin að gera upp við okkur að við ætlum að halda 2 læðum úr Lante goti þar sem við gátum ómögulega valið á milli þeirra, það eru Jojo og Kodou.Yngri kettlingarnir stækka og stækka og eru þau öll búin að opna augun, allt gengur vel.

 

04.04.2008. komnar myndir af kettlingunum 5 daga gömlum. Allt gengur vel, með bæði gotin og eru læðurnar bara frábærar mömmur báðar tvær.

 

29.03.2008. Fæddir eru kettlingar, foreldrarnir eru Eagle-Storm Arwin Evenstar og Eagle-Storm freddy Cruger. Myndir koma fljótlega

 

26.03.2008. Nýji fressinn okkar er kominn til landsins og auðvitað fór hann beint í einangrun. Hann fór út í Hrísey í nýju stöðina. Nú getur maður bara varla beðið eftir að fá hann svo loksins heim :o)

 

10.02.2008. Hjá okkur fæddust kettlingar í gær eða þann 9.mars og eru foreldrarnir  Atalante Silvi-Cola og Eagle-Storm Freddy Cruger. Myndir koma mjög fljótlega.

 

02.02.2008. Það er gaman að segja frá því að við erum búin að finna okkur flottan fress sem verður fluttur inn innan skamms og verður hann í sameign okkar og Eagle-Storm. Það koma svo inn meiri uppl. um hann þegar að nær dregur :o)

02.02.2008. Þá held ég að okkur sé óhætt að segja frá því að pörunin hefur tekist hjá Lante og Fredda og ef að allt gengur að óskum ætttu fyrstu Fjalldrapa Maine coon kettlingarnir að fæðast núna í mars.

 

16.12.2007. Læðurnar Lante og Bína komu til okkar í dag og ætla að búa hjá okkur í framtíðinni. Einnig kom Freddi og ætlar hann að vera hjá okkur í einhvern smá tíma. Ætlunin er að vera í samstarfi með Eagle-Storm kattarækt.

 

   21.10.2007 Það gekk rosalega vel hjá Bellu á sýningunni um síðustu helgi

hún fékk NOM og BOX á sunnudeginum 14oktober.

 

01.10.2007 Við erum búin að taka ákvörðun um að hefja ræktun á Maine Coon

köttum.

Við erum á fullu að leita okkur að fallegum fress til að flytja inn

svo það eru svo sannarlega spennandi tímar framundan.

  11.03.2007. Bella var í BIS goti.

10.03.2007. Bella varð BIS kettlingur ásamt því að vera í BIS goti.

  5.02. 2007.flutti Bella til okkar

 

                      

 

Image©Patti Jo