Fjalldrapa

Maine coon

      Ég heiti Sigríður Þóra en er alltaf kölluð Sigga Tóta, ég hef verið viðloðanndi dýr frá því að ég var bara smá stelpa og suðandi um gæludýr alla tíð en þar sem foreldrar mínir voru ekki hrifin af þessu dýraveseni mínu þá varð ég að bíða þar til ég varð fullorðin sjáf og hef ég tekið það alveg með trompi :-)

Ég byrjaði kattaræktun eftir að ég fékk minn fyrsta persa árið 2003 og hélt að ég myndi sko aldrei vera með neitt annað en persa þar sem það hafði verið mín drauma tegund árum saman en það átti sko eftir að breytast og það strax á fyrstu kattarsýningunni. Þar kynntist ég Siggu og Jóni sem voru líka að stíga sín fyrstu skref í ræktun og voru þau með sína ný innfluttu Maine Coon kisur og við féllum alveg fyrir þeim en það átti nú eftir að líða dálítill tími þar til við tókum ákvörðun um að fá okkur einn slíkann en auðvitað snérum við okkur þá til þeirra Siggu og Jóns í Eagel-Storms og fengum hjá þeim læðu sem heitir Eagel-Storm Fedora "Bella" og sjáum sko alls ekki eftir því þar sem hún er auðvitað alveg æðisleg.

Síðla árs 2007 var svo ákveðið að fara í samstarf með Eagel-Storm og tókum við að okkur 2 af læðunum þeirra Atalante Silvi-Cola "Lante" sem er innflutt frá Póllandi og svo dóttur hennar Eagel-Storm Arwin Evenstar "Bína"

Núna erum við búin að flytja inn högna frá Noregi sem er sameign með Eagel-Storm hann heitir N*Artic Coons Inferno "Ferno".

 

Hafirðu áhuga á að eignast kettling eða bara að forvitnast um tegundina endilega hafðu þá samband til :

fjalldrapa(at)simnet.is

 

Eagle-Storm Fedora (aka"Bella")

Elsku Jón og Sigga Við verðum ykkur ævinlega þakklát fyrir allt það traust sem þið hafið sýnt okkur og áralanga vináttu. Þá er okkur mikill heiður sýndur að fá að taka þátt í því að að efla MCO stofninn hérna á Íslandi :))

 

                       

                 

         

                      

 

 

 

Image©Patti Jo